Friday, May 18, 2007
Meira en 3 mánuðir síðan síðast

Og því ekki séns að ég muni hvað ég er búin að gera seinustu 3 mánuðina :) en ég fór heim í páskafrí í eina og hálfa viku og gerði nákvæmlega ekki neitt :D það var nauðsynlegt til að hlaða batteríin fyrir nýafstaðna prófatíð!!

En á þriðjudaginn var ég búin í prófum :D tók 5 próf og er búin að fá út úr 3, engar glæsieinkunnir þar sem ég var með eindæmum löt að læra á önninni en ég náði þó öllu sem skiptir mestu :)

Og þar sem ég er búin að sitja sveitt yfir bókunum í mánuð ætla ég að skella mér út í kvöld að fagna því að þetta er búið :D

Annars er ég bara eitthvað að reyna að pakka niður hérna, þarf að vera flutt út fyrir 26. og hef enga hugmynd um hvað ég á að gera við allt dótið mitt :S nenni engan veginn að fara með þetta norður bara til að koma með það suður aftur í haust!

Skellti mér í Bláa lónið á miðvikudaginn með Kötu og systur hennar og það var mjög fínt, hef ekki komið þangað síðan í 2. bekk í MA held ég.. var samt svo dösuð þegar ég kom heim að ég lagði mig, sem er reyndar það sem ég er búin að gera mest af eftir þessi próf ;) soooofa mikið :D Fórum svo á Reykjavík pizza company um kvöldið og ég fékk mjög spes pizzu með brunnum hnetum á, en hún var fín þegar ég tók þær af ;)

Er svo að fara að vinna í sumar á Hótel Eddu Akureyri í móttökunni, ætti að þekkja staðinn nokkuð vel, vann í 4 ár þar að þjóna.. Og það er eitthvað af fólki ennþá sem var þegar ég var :)

Úff hvað ég er lélegur bloggari, held ég segi þetta bara gott!

Kv. Gúrí


Posted at 13:14 by guggah
Make a comment  

Monday, May 14, 2007
Superheroquiz :) og bara eitt próf eftir

Your results:
You are Supergirl
Supergirl
70%
Wonder Woman
60%
Superman
55%
Spider-Man
50%
Green Lantern
50%
Hulk
40%
Iron Man
35%
Robin
32%
Batman
30%
Catwoman
30%
The Flash
25%
Lean, muscular and feminine.
Honest and a defender of the innocent.
Click here to take the Superhero Personality Test

Posted at 21:59 by guggah
Make a comment  

Tuesday, February 20, 2007
heim, heim, heim

Held það sé kominn tími á blogg hérna þó ég hafi reyndar ekki mikið að segja.

En ég er búin að panta flug heim um helgina :D ætla að skella mér á skíði og kíkka aðeins á familíuna og nýju kettlinga hans pabba, hann á tvo pínulitla, Tinnu og Pjakk ;)

Annars gengur lífið bara sinn vanagang, mæti í skólann svona þegar ég nenni að vakna á morgnana ;) og alltaf nóg að læra...

 


Posted at 12:04 by guggah
Comments (3)  

Thursday, February 08, 2007
myndir

Halú ætla að skella inn nokkrum myndum síðan við kíkkuðum á Pravda um daginn.

 

Kata, Árni og Teddi

Myndin við borðið okkar vakti mikla athygli1

Teddi greinilega orðinn svangur svo hann er farinn að borða kertastjakann!

Kata að troða sér með ;) eða kannski er súlan þarna til stuðnings ;)

Una var á bíl, ekki ég ;)

Árni og Kata

Una og Teddi

Fannar fékk púðrið hennar Kötu lánað ;)

Teddi hress


Posted at 16:38 by guggah
Make a comment  

Tuesday, December 26, 2006
Gleðileg jól allir saman :)


create your own visited countries map or vertaling Duits Nederlands

Var eitthvað að vafra á netinu, datt inn á þetta, öll lönd sem ég hef komið til, 8% allra landa í heiminum :)


Posted at 11:34 by guggah
Comments (2)  

Saturday, December 16, 2006
Nokkuð sniðugt

Kannski það renni eitthvað asískt framandi blóð í mér ;)

Stolið af síðunni hennar Unu


Posted at 12:38 by guggah
Make a comment  

Wednesday, December 13, 2006
ArrayList profatíð = new ArrayList();

Já prófatíð vill koma manni í gírinn til að blogga.. Ég bara get ekki sagt að tölvunarfræði1a sé brjálað spennandi fag! svið, smiðir, fylki, HashMap.... Eitt próf búið og fjögur eftir! Gekk svona ljómandi vel í fyrsta prófinu :D kom ofurglöð út, lifi ennþá á því sko, væri löngu búin að gefast upp á þessari tölvunarfræði ef mér hefði ekki gengið svona vel. Próf 9 í fyrramálið! en þegar það verður búið kl 12 þá á ég bara 3 próf eftir :D og þá kemst ég alveg bráðum heim og get látið mömmu elda ofan í mig rosa góðan mat.. ég mun heimta steik á hverjum degi ;)

Í próftíð er líka voða freistandi að horfa á myndir og þætti en akkúrat þegar ég er alveg komin inn í seríuna þá bara hætta þeir allt í einu að koma með fleiri þætti sbr. Prison Break, Gilmore Girls, Rescue Me og House! Ætti ég kannski að taka þessu sum hint og hundskast til að læra? nei ég held ekki ;)

Heim eftir 8 daga! Þá ætla ég sko á skíði, hlakka til, og kannski maður kíkki nú eitthvað út, athuga hvernig djammlífið á Akureyri er orðið, einhver game?

En ég verð að ná þessu prófi svo það geti allt gerst svo ég ætla að fara að læra um Hlutarit og Klasarit

Auf wiedersehen

Við Þórunn á röltinu niðrí bæ seinustu áramót :)

 

 

já ég veit! ég veit heldur ekki hvað við vorum að gera ;)

 


Posted at 22:25 by guggah
Comment (1)  

Monday, November 06, 2006
Heima er best :)

jeyj jeyj ég ætla að fara heim um næstu helgi :D þeas ef ég fæ vetrardekkin mín send suður, þar sem þau urðu óvart eftir heima á akureyri í haust! ég held að þó að Baddi sé nú trukkur þá hafi hann ekki af heiðarnar á sumardekkjunum sínum ;)

en það er ekkert annað skemmtilegt að frétta hjá mér, bara skóli og meiri skóli. Og prófin nálgast óðfluga :S svo ég læt þetta duga í bili :)

hasta luego

 


Posted at 13:36 by guggah
Comments (2)  

Friday, October 13, 2006
Föstudagur

Það er aftur kominn föstudagur! aftur og enn einu sinni, ekki er ég að kvarta svosum en það þýðir bara að jólin nálgast stöðugt og þar með prófin. Það verður svolítið undarlegt held ég að fara í próf fyrir jól núna og ekki þurfa að hugsa um neitt í jólafríinu Smile en talandi um jólin, þá fór ég í nýju IKEA búðina í dag! stór! það er rétta orðið, eins og hefur líka staðið á hverju einasta strætóskýli í borginni nánast. Við Una röltum þarna einn hring, úff, það þarf nú einhvern tíma til að læra inn á þessa búð, já talandi um jólin, þeir eru komnir með jólaskraut!!! seinast þegar ég athugaði þá er 13. október í dag!! og það eru meira en tveir mánuðir í jólin.

já í dag er föstudagurinn 13., hefur einhver lent í óhappi eða einhverju? á þetta ekki að vera óheilla dagur? ég allavega hef ekki lent í neinu, ekki ennþá allavega dagurinn er nú ekki búinn Shades

 

Fyrir u.þ.b ári síðan var ég nýkomin heim frá Spáni, við Þórunn saman brúnar og sællegar Big Smile

 

 


Posted at 22:02 by guggah
Comments (2)  

Monday, September 25, 2006
Innflutt

Já þá er ég formlega flutt inn, búin að halda innflutningspartý og allt :)

17 manns í 29fm mína ;) geri aðrir betur, takk allir saman fyrir komuna, það var gaman að fá ykkur :D

ætla að skella inn hérna þessum örörfáu myndum sem ég tók, var of upptekin að klára 10 lítra bolluna til að hafa myndavélina á lofti ;)

Kata að klára bolluna beint úr fötunni ;)

Helga módel

Binni hress

og svo Almarr ekki jafn hress daginn eftir ;)

ekki heldur Kata


Posted at 14:39 by guggah
Comments (3)  

Next Page
Guðrún Helga, Gúrí
   

<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed