Wednesday, September 06, 2006
...

Hresst að vera vöknuð kl 9:15 þegar maður á ekki að vera mættur í skólann fyrr en 12! bambus gardínurnar mínar skýla ekkert sérstaklega vel í birtunni á morgnana ;)

en þá þýðir ekkert annað en að fara bara að læra, nóg sem þarf að lesa, þar sem ég er komin eftir á líka, bara búin með fyrsta kafla í öllum fögum en á víst að vera komin í annan kafla á sama tíma og ég þarf að skila öllum þessum heimadæmum :S

var í eðlisfræðitilraun á mánudaginn, vil sem minnst tala um það, lenti með frekar SPES strák í hóp :( allavega ég kúgaðist, það er lýsingin á honum! og við erum bara 2 ein í hóp!!

en ástæðan fyrir þessu bloggi er nú ekki að tala um skólann heldur að ég á afmæli eftir minna en hálfan mánuð :D:D sem þýðir að það verður haldið svaka partý! eða eins stórt partý  og 29 fm íbúðin mín leyfir ;) allavega takiði frá föstudaginn 15. eða laugardaginn 16. fyrir afmælis/innflutningspartý :)


Posted at 11:29 by guggah
Comments (2)  

Saturday, September 02, 2006
skólinn

bls 23 af 1714 í eðlisfræðibókinni minni, góður árangur þar.. en já skólinn byrjaður og ég flutt til reykjavíkur! ekki hægt annað en að segja að skólinn er byrjaður á fullu, eðlisfræðitilraun á mánudag og heimadæmi í öllum fögum í næstu og þarnæstu viku! á sama tíma og ég er að reyna að koma mér fyrir í íbúðinni minni, sem gengur svona upp og ofan, komin gardína fyrir einn glugga en einn er ennþá með dagblöð ;) frekar rónalegt allt saman

en bókin kallar, bara að láta vita að ég er á lífi :)

 


Posted at 13:21 by guggah
Comments (3)  

Monday, July 31, 2006
fullorðin!

Ég hlakka til að verða fullorðin og flytja að heiman í fyrsta skipti á ævinni :D svona alvöru, tel ekki með þegar ég fór til útlanda bara! ég fór um daginn og keypti mér hluti í búið mitt ;) litlu 29 fermetra stúdentaíbúðina mína :D ég keypti diska og glös og klukku og ofnhanska ;) allt voða sætt! en það er líka bara mánuður þangað til ég flyt suður!!! tveir mánuðir af sumrinu búnir og ég er ekki búin að gera helminginn af því sem ég ætlaði að gera, bara búin að fara í eina mini útilegu...

skólinn byrjar bara á fullu 28. ágúst skilst mér! ég veit ekki hvernig þetta legst í mig, línuleg algebra og stærðfræðifreining, hljómar ekkert ofurspennandi :S en ég hlakka til að hitta nýtt fólk og byrja í háskóla eins og fullorðna fólkið gerir ;)

og svo er komið aftur að versló, eintóm vinna eins og alltaf!! ég hef aldrei átt frí um versló, akureyringar vinna allir, alltaf um versló held ég enda er fólk þunnt hingað og þangað um bæinn í öllum vinnunum sínum ;)

en gott í bili ég ætti að koma mér í bólið, vinna í fyrramálið sem ég nenni ekki í, komin með nett ógeð á gráðugum túrhestum

hafið það gott bæjó


nýja íbúðin mín :D


Posted at 00:16 by guggah
Make a comment  

Monday, July 24, 2006
myndir

Var að setja inn örfáar myndir frá 16. júní :) hér

Posted at 13:05 by guggah
Make a comment  

Saturday, July 22, 2006
jey jey jey

jey ég fæ íbúð á stúdentagörðunum ef ég vil :D :D

Posted at 01:55 by guggah
Comment (1)  

Tuesday, July 11, 2006
tilbreyting

42 tíma vinnuhelgi, bara hresst!! þannig að ég hef frá engu að segja, nema þið viljið heyra sögur af heyrnalausa fólkinu, fræga fólkinu eða leiðinlegu íslendingunum sem koma á bautann ;) sem ég held þið viljið ekki heyra

en ég er að prufa mig áfram í nýju bloggi, komin með leið á blog.central

sjáum til

hef ekkert að segja

var að hugsa um að fara suður um helgina en held ég fari ekki, myndi bara eyða peningum þar! sem ég má ekki við ef ég ætla að eiga efni á að flytja suður í haust!!!

auglýsi einmitt hér með eftir íbúð fyrir sunnan, er á biðlista á stúdentagörðunum og er ekki vongóð!

prufum þetta

kveðja Gúrí


Posted at 01:06 by guggah
Comments (2)  

Previous Page
Guðrún Helga, Gúrí
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed