Það er aftur kominn föstudagur! aftur og enn einu sinni, ekki er ég að kvarta svosum en það þýðir bara að jólin nálgast stöðugt og þar með prófin. Það verður svolítið undarlegt held ég að fara í próf fyrir jól núna og ekki þurfa að hugsa um neitt í jólafríinu
en talandi um jólin, þá fór ég í nýju IKEA búðina í dag! stór! það er rétta orðið, eins og hefur líka staðið á hverju einasta strætóskýli í borginni nánast. Við Una röltum þarna einn hring, úff, það þarf nú einhvern tíma til að læra inn á þessa búð, já talandi um jólin, þeir eru komnir með jólaskraut!!! seinast þegar ég athugaði þá er 13. október í dag!! og það eru meira en tveir mánuðir í jólin.
já í dag er föstudagurinn 13., hefur einhver lent í óhappi eða einhverju? á þetta ekki að vera óheilla dagur? ég allavega hef ekki lent í neinu, ekki ennþá allavega dagurinn er nú ekki búinn 
Fyrir u.þ.b ári síðan var ég nýkomin heim frá Spáni, við Þórunn saman brúnar og sællegar 

