Meira en 3 mánuðir síðan síðast
Og því ekki séns að ég muni hvað ég er búin að gera seinustu 3 mánuðina :) en ég fór heim í páskafrí í eina og hálfa viku og gerði nákvæmlega ekki neitt :D það var nauðsynlegt til að hlaða batteríin fyrir nýafstaðna prófatíð!!
En á þriðjudaginn var ég búin í prófum :D tók 5 próf og er búin að fá út úr 3, engar glæsieinkunnir þar sem ég var með eindæmum löt að læra á önninni en ég náði þó öllu sem skiptir mestu :)
Og þar sem ég er búin að sitja sveitt yfir bókunum í mánuð ætla ég að skella mér út í kvöld að fagna því að þetta er búið :D
Annars er ég bara eitthvað að reyna að pakka niður hérna, þarf að vera flutt út fyrir 26. og hef enga hugmynd um hvað ég á að gera við allt dótið mitt :S nenni engan veginn að fara með þetta norður bara til að koma með það suður aftur í haust!
Skellti mér í Bláa lónið á miðvikudaginn með Kötu og systur hennar og það var mjög fínt, hef ekki komið þangað síðan í 2. bekk í MA held ég.. var samt svo dösuð þegar ég kom heim að ég lagði mig, sem er reyndar það sem ég er búin að gera mest af eftir þessi próf ;) soooofa mikið :D Fórum svo á Reykjavík pizza company um kvöldið og ég fékk mjög spes pizzu með brunnum hnetum á, en hún var fín þegar ég tók þær af ;)
Er svo að fara að vinna í sumar á Hótel Eddu Akureyri í móttökunni, ætti að þekkja staðinn nokkuð vel, vann í 4 ár þar að þjóna.. Og það er eitthvað af fólki ennþá sem var þegar ég var :)
Úff hvað ég er lélegur bloggari, held ég segi þetta bara gott!
Kv. Gúrí
Posted at 13:14 by guggah