ArrayList profatíð = new ArrayList();
Já prófatíð vill koma manni í gírinn til að blogga.. Ég bara get ekki sagt að tölvunarfræði1a sé brjálað spennandi fag! svið, smiðir, fylki, HashMap.... Eitt próf búið og fjögur eftir! Gekk svona ljómandi vel í fyrsta prófinu :D kom ofurglöð út, lifi ennþá á því sko, væri löngu búin að gefast upp á þessari tölvunarfræði ef mér hefði ekki gengið svona vel. Próf 9 í fyrramálið! en þegar það verður búið kl 12 þá á ég bara 3 próf eftir :D og þá kemst ég alveg bráðum heim og get látið mömmu elda ofan í mig rosa góðan mat.. ég mun heimta steik á hverjum degi ;)
Í próftíð er líka voða freistandi að horfa á myndir og þætti en akkúrat þegar ég er alveg komin inn í seríuna þá bara hætta þeir allt í einu að koma með fleiri þætti sbr. Prison Break, Gilmore Girls, Rescue Me og House! Ætti ég kannski að taka þessu sum hint og hundskast til að læra? nei ég held ekki ;)
Heim eftir 8 daga! Þá ætla ég sko á skíði, hlakka til, og kannski maður kíkki nú eitthvað út, athuga hvernig djammlífið á Akureyri er orðið, einhver game?
En ég verð að ná þessu prófi svo það geti allt gerst svo ég ætla að fara að læra um Hlutarit og Klasarit
Auf wiedersehen
Við Þórunn á röltinu niðrí bæ seinustu áramót :)


já ég veit! ég veit heldur ekki hvað við vorum að gera ;)